búin að fá nóg!

guð minn almáttugur, eg er búin að fá nóg af þessari endalausu umræðu um megranir og feitt folk!

afhverju haldiði að krakkar seu alltaf í megrun? því þau sjá fólk í megrun útum allt!

eg lifði miklu betra lífi þegar eg hafði ekki hugmynd um hvað var óhollt og hvað væri "fitandi" ! og þessir krakkar eru ekki í megrun að hreyfa sig, heldur eru þau að svelta sig til að léttast! þegar eg var krakki hafði eg ekki hugmynd um þessa hlut, en eg vissi að eg mætti t.d. ekki borða nammi nema einu sinni í viku. það var bara regla í mínu heimili, ekki því það væri fiitanddii og ég ætti sko að vrea í megrun! 

eg var einmitt svo hissa á stelpu sem eg var apð tala við um daginn, sem er 16 ára. hún var að segja mer að hun hefði prufað allskonar megrunar kúra, danska kúrinn og hvað eina! og þegar hun þyngist um kíló borðar hún bara ekki fyrr en það er farið og helst eitt í viðbót!! hvað er að þessu? og danski kúrinn, ég leit alltaf á það sem svona eitthvað sem eldri konur prufa þegar allt annað fellur!

mér finnst alltí lagi að krakkar séu meðvitaðir um að t.d. ekki er holt að borða franskar og kokteilsósu á hverjum degi og svo ís í eftirrétt! en mér finnst að ekki eigi að kenna krökkum á kalóríur og þannig, þau eiga bara að borða nærignarríkan mat! þau eru enn að stækka! og það er auðvitað upp á foreldra komið að venja krakkana á að borða rétt, með því að hafa fjölbreyttan mat á matartímum. það er bara alltof mikið um að fólk er orðið svo upptekið af vinnu og svona að það leggur ekki nægja vinnu í fjölskylduna sína og panta bara pizzu eða elda pulsur! 

það a bara að taka tölvur og sjónvörp úr herbegjum krakkana og skrá þau í einhverja íþrótt! og ekki tyggja ofan í þau "ekki borða þetta, ekki borða hitt" 

 

eitt finnst mér þó gott, í sumum skólum er heitur matur í hádeginu. það vegur á móti í þeim fjölskyldum þar sem  ekki er mikið lagt í kvöldmatinn.

 

eenn eg segi bara, verum ánægð með okkur eins og við erum! gengur ekki að vera endalaust að vera að reyna að breyta sér! 

mer persónnulega finnst hvernig fólk ber sig miklu mikilvægara en hversu !feitt! það er! sumir eru mjög stórbeinóttir og maður sér það varla því þau bera sig svo vel ;) svo erum við öll misjafnlega byggð, ekki er hægt að leitast eftir að vera öðruvísi en vaxtarlag leyfir! ;)

(ps. eg er ekki að segja að offita sé í lagi!) 

 


mbl.is Heimsmeistarar í megrun barna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband